Fréttir og tilkynningar
Strimlagardínurnar í Hömrum fá upplyftingu
Velgjörðarfólk Tónlistarskóla Ísafjarðar er víða og alltof sjaldan nefnt. Sigrún Viggósdóttir og Páll Loftsson eru alltaf boðin og búin að rétta út hjálparhönd, eru einstaklega útsjónarsöm og ráðagóð, en dettur ekki í hug að þiggja neitt í staðinn nema ánægjuna. Svona...
Bríet Vagna – kveðjutónleikar í Hömrum
Bríet Vagna Birgisdóttir, söngkona og gítarleikari, heldur kveðjutónleika fimmtudaginn 19. maí kl. 20:00 í Hömrum, sal tónlistarskólans á Ísafirði. Þar syngur hún og spilar ásamt hljómsveit og munu þau flytja ýmis lög allt frá jazzi til rokks. Öllum er aðgangur...
Skólaslitin verða á föstudaginn kl 18
Tónlistarskóla Ísafjarðar verður slitið föstudaginn 20. maí kl 18 í Ísafjarðarkirkju. Nemendur, kennarar, forráðamenn og velunnarar skólans velkomnir. Opið er fyrir umsóknir fyrir næsta skólaár á heimasíðu skólans: UMSÓKNIR
Getum bætt við nemendum í söngdeildina
Langar þig að taka þátt í kórstarfi, árshátíðarsöngatriðinu, Sólrisuleikritinu og vantar undistöðu í söng? Höfum nú fleiri pláss laus í einsöng næsta vetur. Það er líf og fjör í söngdeildinni. Bjarney Ingibjörg Gunnlaugsdóttir og Sigrún Pálmadóttir eru hugmyndaríkir...
Vortónleikar kvennakórsins
Vortónleikar Kvennakórs Ísafjarðar verða í Hömrum sunnudaginn 15. maí kl 16. Flutt verða lög eftir vestkfirska söng- og lagahöfunda. Aðgangseyrir kr. 2000
Vortónleikaröðin hófst með vorþyt lúðrasveitanna
Vortónleikaröð tónlistarskólans hófst með hressilegum tónleikum lúðrasveita skólans, Skólalúðrasveit Tí og Lúðrasveit TÍ undir öruggri stjórn Madis Mäekalle. Hann hefur útsett flest lögin sjálfur og er vakinn og sofinn yfir sveitunum eins og gestir í Hömrum fengu að...
Vorþytur – lúðrasveitatónleikar í Hömrum
Vorþytur, tónleikar lúðrasveitanna eru fyrstu vortónleikarnir á þessu ári, það hefur ekkert breyst. Verðið breytist ekki heldur, það hefur kostað 1,000 kr. inn frá upphafi. Í Hömrum, miðvikudaginn 4. maí kl. 20. Boðið verður upp á skúffuköku að góðum og gömlum...
Hátíðastemning og fagnaðarfundir í Hömrum
Það var sannkölluð hátíðastemning og fagnaðarfundir í Hömrum í dag, þegar bræðurnir Maksymilian Haraldur víólu- og fiðluleikari, Mikolaj Ólafur píanóleikari og Nikodem Júlíus Frach fiðluleikari héldu tónleika ásamt kennara Nikodems, Piotr Tarcholik, en hann er...
Hátíðartónleikar í Hömrum á sunnudag – ókeypis aðgangur
Ísfirsku bræðurnir Maksymilian Haraldur, Mikolaj Ólafur og Nikodem Júlíus Frach eru komnir eins og aðrir vorboðar. Margir munu hafa hug á að hlusta á þessa eftirlætisnemendur í Tónlistarskólanum um árabil, en þeir stunda nú nám í Póllandi. Þeir halda hátíðartónleika í...
Samsöngskemmtun í Hömrum á miðvikudaginn kl 17
Samsöngurinn fyrir páska heppnaðist svo vel að við ætlum að endurtaka leikinn á miðvikudaginn kl. 17. Öllum er boðið að koma og syngja saman í Hömrum, sal Tónlistarskóla Ísafjarðar í fjöldasöng miðvikudaginn 27. apríl kl. 17. Textum verður varpað upp. Boðið verður upp...
Bókasafn tónlistarskólans í stærra rými
Harðduglegt starfsfólk tónlistarskólans bretti upp ermar og flutti bókasafnið úr litlu herbergi niður í stærra rými á fyrstu hæð. Nú er búið að endurraða og skipuleggja upp á nýtt.
Herdís Anna – söngvari ársins – tónleikar í Hömrum
Söngvari ársins Herdís Anna Jónasdóttir mætir á Ísafjörð ásamt félögum sínum Grími Helgasyni og Semion Skigin. Tríóið flytur verk fyrir sópran, klarinett og píanó eftir J. S. Bach, Schubert og Louis Spohr. 6. apríl 2022 kl. 20:00 í Hömrum Miðaverð kr. 3000, en kr....
Peter og Aladár
Peter Máté og Aladár Rácz léku á tveggja flygla tónleikum Tónlistarfélags Ísafjarðar í Hömrum í dag og fóru algerlega á kostum. Áheyrendur fuku annað slagið aftur á bak í sætunum, svo mikill var krafturinn og fingrafimin. Einfaldlega stórkostleg upplifun. Í sambandi...
Húsmæðraskólinn Ósk – myndir frá opnun sögusýningar
Fjölmargar fyrrum námsmeyjar úr Húsmæðraskólanum Ósk komu á opnun sögusýningar um starfsemi skólans. Tekið er á móti útskriftarhópum úr húsmæðraskólanum og öðrum sem vilja skoða. Efsta mynd, f.v. Linda R. Kristjónsdóttir, Erla Aðalsteinsdóttir, Auður Yngvadóttir,...
Nótan 2022 í Stykkishólmi
Nótan, uppskeruhátíð tónlistarskólanna, fór fram í Stykkishólmskirkju 19. mars. Þátttakendur komu hvaðanæva af vesturhluta landsins, allt frá Akranesi til Ísafjarðar. Á hátíðinni var einstaklega gott andrúmsloft enda langþráð að hittast eftir tveggja ára hlé. Hátíðin...
Nótan 2022 – beint streymi á laugardaginn
Nokkrir nemendur úr Tónlistarskóla Ísafjarðar taka þátt í Nótunni, uppskeruhátíð tónlistarskólanna á Íslandi á laugardaginn. Að þessu sinni fer Nótan fram í Stykkishólmskirkju og hægt verður að fylgjast með beinu streymi HÉR Útsendingin hefst kl....
Samsöngskemmtun í Hömrum á fimmtudaginn kl 18
Það er kominn tími til að Ísfirðingar syngi í sig vorið. Hugurinn ber okkur hálfa leið. Öllum er boðið að koma og syngja saman í Hamra, sal Tónlistarskóla Ísafjarðar í fjöldasöng fimmtudaginn 24. mars kl. 18. Textum verður varpað upp. Aðgangur ókeypis og allir...
Fjögurra handa ferðalag – píanótónleikar 27. mars í Hömrum
Með gleði í hjarta kynnir Tónlistarfélagið til leiks tvo frábæra píanóleikara þá Aladár Rácz og Péter Máté. Báðir eru þeir af ungversku bergi brotnir en fæddir í sitthvoru landinu og kynntust fyrst sem þátttakendur í píanókeppni í Belgrad, árið 1983. Báðir hafa þeir...
Opnun sýningar um Húsmæðraskólann Ósk
Fimmtudaginn 24. mars kl. 17 verður sýningin um Húsmæðraskólann Ósk „opnuð" Til opnunarinnar er boðið öllum dömum sem voru á húsmæðraskólanum, þið megið gjarnan segja þeim frá þessu. 🥘 👉 MEIRA HÉR 👈 🥘
Sara Hrund
Sara Hrund Signýjardóttir ræður ríkjum í útibúinu á Suðureyri. Þegar Sara er að kenna, er eins og nemendur detti í núvitund, einbeitingin verður mjög sterk og mikil ró færist yfir. Þetta gerir Söru að afbragðs kennara. Sara er Ævintýrakona með stóru Æ-i. Einu sinni...
Skólahald fellur niður 14. mars
Grunnskólinn hefur nú fellt niður kennslu í dag, vegna veðurs. Þar sem veðurspáin virðist ætla að ganga eftir, neyðumst við til að fella niður kennslu einnig síðdegis.
Skólahald fellur niður 23. febrúar
Vegna slæmrar veðurspár neyðumst við til að fella niður kennslu á morgun, miðvikudag 23. febrúar. Nú verðum við að fara að bjóða veðurguðunum í pönnukökur til að blíðka þá. En góðu fréttirnar eru að þegar við erum inni í hríðarbyl, er hægt að æfa sig allan...
Andri Pétur með plötu
Undirstaða velgengni í Tónlistarskólanum er ekki hvað síst frábært kennaralið. Góðir listamenn og skólastarfið gengur eins og vel smurð vél fyrir elju þeirra og alúð. Sum eru m.a.s. tónskáld. Á opnu húsi í haust voru t.d. tónleikar með einstaklega fallegum lögum...
Sigtryggur fór á kostum í masterklass
Það hljóp heldur betur á snærið hjá okkur að fá Sigtrygg Baldursson a.k.a. Bogomil Font til að gefa okkur innsýn í heim trommuleiksins, pælingarnar þegar hann var að byrja og þróun ferilsins o.m.fl. Svo fengum við dæmi um alls konar bít og pólíritma. Að tromma er...
Vetrarfrí og starfsdagur
Föstudaginn 18. feb. og mánudaginn 21. feb. er vetrarfrí í Tónlistarskólanum eins og í Grunnskólanum. Þriðjudaginn 22. feb. er sömuleiðis starfsdagur eins og í Grunnskólanum.
Námskeið með Sigtryggi Baldurssyni
Í dag var skonsukaffi með Sigtryggi Baldurssyni, öðru nafni Bogomil Font og Gulla Jónasar. Sigtryggur verður með námskeið fyrir slagverksnemendur á miðvikudag 16. febrúar kl. 17, en aðrir nemendur eru velkomnir. Gulli Jónasar er mikill aufúsugestur, en hann fór á...
Jón Mar Össurarson
Jón Mar Össurarson Þetta er hann Jón Mar slagverkskennari, mjög eftirsóttur kennari, enda pottþéttur, traustur og hlýr gaur. Hann sér margt skemmtilegt í tilverunni og það leynir sér ekki í augunum á honum þegar hann er að hugsa eitthvað fyndið. Stundum kemur hann inn...
Rúna Esradóttir
Rúna Esradóttir Þetta er hún Rúna. Hún hefur einstaklega smitandi hlátur. Það er kannski af því að hún er gleðigjafi að upplagi. Um leið hefur hún mikið jafnaðargeð og það er ekkert skrýtið þó að börnin flykkist til hennar, öllum líður einfaldlega vel þar sem Rúna er....