Tónlistarskólinn 75 ára

Tónlistarskóli Ísafjarðar 75 ára – sögusýning

Í tilefni 75 ára afmælis Tónlistarskóla Ísafjarðar var opnuð sögusýning um blómlega starfsemi skólans. Sýningin er á ganginum á fyrstu hæð skólans og hægt að skoða hana á opnunartíma skólans. Opnun sýningarinnar markar upphaf fjölbreytts afmælisárs Tónlistarskólans.

Á Youtube má sjá eitt og annað efni, bæði nýtt og gamalt. NÁNAR HÉR.

Gunnlaugur Jónasson klippti á borðann og opnaði með því sögusýninguna. Frá vinstri: Bergþór, Geigei, Gulli og Arnheiður.

Áður en sögusýningin var formlega opnuð var samsöngur í Hömrum, Bergþór skólastjóri bauð gesti velkomna og sagði frá aðdraganda sýningarinnar.

Sögusýningin er á fyrstu hæð Tónlistarskólans og er opin á opnunartíma skólans.

Geirþrúður Charlesdóttir og Gunnlaugur Jónasson

Við opnunina var gestum boðið upp á samæfingarkökuna. Hér er hún skorin í bita og röðuð upp í 75. Uppskriftin er HÉR.

Tilvitnanir í ræður fjögurra skólastjóra

Samæfingaborðið.  Nemendur fundu sér ýmislegt til dundurs meðan á samæfingunum stóð. Hér má sjá hluta af borði úr Smiðjugötunni sem varð hnyttni nemenda að bráð. Borðplötur þessar eru listaverk í sjálfu sér.

Samæfingaborðið.  Nemendur fundu sér ýmislegt til dundurs meðan á samæfingunum stóð. Hér má sjá hluta af borði úr Smiðjugötunni sem varð hnyttni nemenda að bráð. Borðplötur þessar eru listaverk í sjálfu sér.

— — —

Sýningarhöfundur: Arnheiður Steinþórsdóttir
Sýningarhönnuður: Gunnar Bjarni Guðmundsson
Sýningarnefnd: Albert Eiríksson, Bergþór Pálsson, Bjarney Ingibjörg Gunnlaugsdóttir og Steinþór Bjarni Kristjánsson
Nótur á veggjum: Hrefna Valdemarsdóttir og Jón Ágúst Þorsteinsson

Helstu heimildir:
Björn Teitsson, „Ágrip af sögu Tónlistarskóla Ísafjarðar.“ Ársrit Sögufélags Ísfirðinga 38 (1998).
Ræður skólastjóra.
Skýrslur um starf skólans.
Sögusýning í tilefni 60 ára afmælis Tónlistarskóla Ísafjarðar.
Viðtal höfundar við Sigríði Ragnarsdóttur árið 2018.

Sérstakar þakkir:

Byggðasafn Vestfjarða
Edda Pétursdóttir
Fab Lab Ísafjörður
Geirþrúður Charlesdóttir
Gunnlaugur Jónasson
Herdís Anna Jónasdóttir
Héraðsskjalasafnið Ísafirði
Hulda Bragadóttir
Jóhanna María Steinþórsdóttir
Judy Tobin
Leslaw Szyszko
Madis Mäekalle
Magnús Gunnlaugsson
Safnahúsið Ísafirði
Sigríður Ragnarsdóttir.