Allt gengur sinn vanagang

28. október 2026 | Fréttir

Allt gengur sinn vanagang í Tónlistarskólanum. Vetrarfríið leið hratt og Opna húsið tókst vel að vanda.

Framundan er nóvember með spilatímum fram að jólatónleikum, sem eru fyrirhugaðir í vikunni 7.–11. desember hjá hljóðfæranemendum.

Þau sem hafa áhuga á hljóðfæranámi geta skráð sig á biðlista á Abler, en laust er í trommunám. Allar umsóknir berast í gegnum umsóknarsíðu skólans á Abler.

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is