Það eru gleðitíðindi að segja frá því að nú í samstarfi við Grunnskólann á Ísafirði mun forskólastarf Tónlistarskólans vera í stundatöflu nemenda í 1 og 2 bekk þar sem kennararnir Ásta Kristín og Jórunn Björk munu sjá um starfið á skólatíma. Skráning fyrir nemendur er því óþörf og fá yngstu nemendur grunnskólans að kynnast öllu því forskólinn hefur upp á að bjóða.
Í forskóla fá börn í 1. og 2. bekk að kynnast tónlist á fjölbreyttan, skapandi og leikandi hátt. Þar er unnið með söng, hreyfingu, hrynjandi, hlustun, tónlistarleiki og einföld hljóðfæri – allt í gegnum leik og gleði. Forskólinn gefur börnum tækifæri til að upplifa tónlist áður en þau þurfa að velja sér hljóðfæri. Þau fá að prófa sig áfram, uppgötva hvað þeim finnst skemmtilegt og kynnast ólíkum hliðum tónlistar.
Tónlistarnám getur stutt við margvíslegan þroska barna. Í forskólanum æfa þau meðal annars að hlusta, muna, einbeita sér, fylgja leiðbeiningum og vinna saman. Þau læra að finna takt, greina hljóð og mynstur og tjá sig með rödd, líkama og hljóðfærum.
Þannig getur tónlistin stutt við færni sem nýtist víðar í námi – til dæmis við málþroska, rökhugsun, einbeitingu, samhæfingu og félagsfærni.
Hlökkum til samstarfsins í vetur og það verður gaman að fylgjast með hópunum kynnast töfraheimi tónlistarinnar.
