Í dag hófust starfsdagar hjá kennurum sem hefja nú handa að fara í gegnum nemendalistann sinn og taka stöðuna á nýju skólaári. Þeir sem eru að hefja tónlistarnám og sendu inn umsókn í vor munu fá upplýsingar um stöðu umsóknar á næstu dögum en vonandi munu allir þeir sem sótt hafa um fá pláss. Ef einhverjar spurningar vakna endilega hafið samband með því að hringja í 4508340 eða senda tölupóst á tonis@tonis.is
Skólasetning er 25. ágúst kl .17 – Nemendum gefst kostur á að hitta á kennara sinn að því loknu í kennslustofu viðkomandi kennara.
Vonandi sjáum við sem flesta – kjörið tækifæri til að ræða óskir um hentuga spilatíma.