Samæfingatertan

14. mars 2023 | 75 ára afmælið, Fréttir

Samæfingaterta smiðjugata ragnar h ragnar sigríður j ragnar döðluterta ísafjörður

Samæfingatertan

Samæfingatertan

Ein frægasta kakan í hugum margra sem tengjast Tónlistarskólanum, er svokölluð samæfingaterta, en það var döðluterta sem skólastjórafrúin, Sigríður J. Ragnar, bakaði. Lengi vel voru nemendur og kennarar boðaðir heim til skólastjórahjónanna á sunnudögum á samæfingar (sem heita tónfundir í öðrum skólum), yngri börnin fyrst og eldri seinna. Milli æfinga var kennurum boðið upp á hina ljúffengu döðlutertu/„samæfingatertuna“.

.

Kennarar Tónlistarskólans í hléi á samæfingu í Smiðjugötunni. Á borðinu er döðluterta sem alltaf var kölluð samæfingaterta. Frá vinstri: Sigríður J. Ragnar, Jónas Tómasson, Elín Jónsdóttir og Inga Ásta Hafstein.

 

Samæfingatertan – Döðluterta

1 b sykur
2 egg
1-2 msk vanilludropar
1-2 msk kardimommudropar
1 1/2 b hveiti
1 1/2 b haframjöl
2 tsk lyftiduft
1 pk saxaðar döðlur (1 bolli)
1 b bráðið smjörlíki
100 g saxað súkkulaði

Þeytið saman egg og sykur.
Blandið saman hveiti, haframjöli og lyftidufti.
Bætið döðlunum saman við og hrærið.
Loks smjörlíki og súkkulaði.

Setjið í 200°C heitan ofn og lækkið í 175°C í um 40 mín.

samæfingaterta

Samæfingakaka. Uppskrift frá Elínu Jónsdóttur.

Við opnun sögusýningar til að minnast 75 ára afmælis Tónlistarskólans var gestum boðið upp á samæfingarkökuna. Hér er hún skorin í bita og uppröðuð í 75.