Brahms veisla – Mikolaj, Maksymilian, Nikodem Frach – tónleikar 24. maí kl 19.30

21. maí 2024 | Fréttir, Hamrar, Tónlistarfélagið

Brahms veisla. Mikolaj, Maksymilian, Nikodem Frach – tónleikar 24. maí kl 19.30

Bræðurnir Mikolaj, Nikodem og Maksymilian Frach bjóða til Brahms tónlistarveislu föstudagskvöldið 24. maí kl. 19:30.
Á dagskránni verður yndisleg kammertónlist eftir Brahms, m.a. fræga tríóið op. 40, og 6 einleiksverk fyrir píanó op.118. Einnig munu hljóma verk eftir Frédéric Chopin.

Mikolaj, Maksymilian og Nikodem eru allir nemendur við Tónlistarakademíuna í Kraká og hafa hlotið verðlaun í ýmsum alþjóðlegum tónlistarkeppnum, en eins og mörgum er kunnugt eru þeir fæddir og uppaldir á Ísafirði og mörg okkar hafa fylgst með þroska þeirra frá bernsku þeirra. Þeir eru því sérstakir aufúsugestir hér.

Eftir tónleikana verður verður gestum boðið upp á drykk og hressingu.

Aðgangur ókeypis.

Tónleikarnir eru styrktir af Tónlistarfélagi Ísfirðinga, Vestfjarðastofu og Orkubúi Vestfjarða.

.

Brahms veisla. Mikolaj, Maksymilian, Nikodem Frach – tónleikar 24. maí kl 19.30

 

..

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is