Tónlistarfélagið
Tónlistarfélagið hefur það að markmiði er að efla tónlistarstarfsemi og tónlistaráhuga í Ísafjarðarbæ og eiga samvinnu við tónlistarfólk. Helstu verkefni félagsins eru umfangsmikið tónleikahald og húsnæðismál Tónlistarskólans. Haldnir eru fernir áskriftartónleikar á hverju starfsári félagsins, en einnig stendur félagið fyrir ýmsum öðrum tónleikum, oft í samvinnu við aðra. Félagið aðstoðar einnig með ýmsum hætti listamenn sem vilja halda tónleika hér vestra á eigin vegum. Stofnfundur Tónlistarfélags Ísafjarðar var haldinn 20. maí 1948 að heimili Jónasar Tómassonar, bóksala, organista og tónskálds. Boðaðir voru 12 menn og var félagið lengi 12 manna félag, en er nú öllum opið.
Félagar fá sendan tölvupóst með upplýsingum um tónleikahald.
Aðalfundur er haldinn árlega og skal boðað til hans með minnst viku fyrirvara.
Í lögum um félagið segir að tilgangur þess sé að efla tónlistarstarfsemi og tónlistaráhuga á Ísafirði, fyrst og fremst, og víðar eftir því sem við verði komið. Einnig að félagið eigi samvinnu við starfandi tónlistarmenn og söngkóra á Ísafirði, vinni að því að jafnan sé völ á sem fjölbreyttastri og fullkomnastri tónlistarkennslu á Ísafirði og haldi uppi almennri tónlistarstarfsemi svo sem með því að fá til bæjarins tónlistarmenn, hljómsveitir og kóra, innlenda sem erlenda, til að halda tónleika og vinna að öðru leyti að almennri tónlistarfræðslu.
Þau sem vilja gerast félagar í Tónlistarfélaginu, eða spyrjast fyrir um tónleika, eru hvött til að hafa samband við formanninn Steinþór B. Kristjánsson duik@simnet.is
Stjórn félagsins:
Steinþór B. Kristjánsson formaður, meðstjórnendur eru Steingrímur Rúnar Guðmundsson, Svanhildur Garðarsdóttir, Hildur Elísabet Pétursdóttir og Eiríkur Örn Nordahl.
.
Tónlistarfélagið auglýsir styrki til tónleikahalds í Hömrum
Tónlistarfélagið auglýsir styrki til tónleikahalds í Hömrum Tónlistarfélag Ísafjarðar auglýsir styrki til tónleikahalds í Hömrum veturinn 2023-2024. Veittir verða styrkir til tónlistarmanna og/eða tónlistarhópa. Umsóknarfrestur er til 20. nóvember 2023. Nánari...
Sif Margrét Tulinius og Edda Erlendsdóttir – tónleikar Tónlistarfélags Ísafjarðar í Hömrum 22. sept.
FRESTAÐ VEGNA VEIKINDA. Sif Margrét Tulinius og Edda Erlendsdóttir – tónleikar Tónlistarfélags Ísafjarðar í Hömrum 22. september kl. 20. Frönsk rómantík og impressionismi – stefnumót franskra kventónskálda við Ravel og Debussy Þessi efnisskrá með franskri tónlist frá...
Fræbblarnir, tónleikar á Vagninum 2. sept. kl 22
Fræbblarnir, tónleikar á Vagninum 2. september kl 22 Fræbblarnir verða með tónleika/ball á Vagninum, Flateyri laugardaginn 2. september kl 22. Þessi viðburður er hluti af afmælisdagskrá Tónlistarfélagins. Frekar óvenjulegt, en ótrúlegt en satt, fyrsta skipti sem þeir...
Gímaldinn – tónleikar í Hömrum
Gímaldinn - tónleikar í Hömrum GÍMALDINN-tónleikar í Hömrum fimmtudagskvöldið 30. mars kl.20:30. Gímaldinn mun leika þrjár hreyfingar úr sex (og enn stækkandi) hreyfinga raðverkinu Kinly Related Metal Reggaes. Um er að ræða bráðnýja brass útsetningu en yfirleitt eru...
Magnea og Kristinn Örn – Tónleikar 12. mars FRESTAÐ V/VEIKINDA
Magnea Tómasdóttir og Kristinn Örn Kristinsson á tónleikum Tónlistarfélagsins 12. mars í Hömrum kl. 20. FRESTAÐ VEGNA VEIKINDA Á efnisskránni verða eingöngu lög eftir Jón Ásgeirsson en eins og flestir vita er Ísafjörður hans fæðingarbær. Ljóð eftir Jón Óskar Hafljóð...
Gunnar Kvaran og Jane Ade Sutarjo í Hömrum 8. október
Fyrstu áskriftartónleikar Tónlistarfélagsins á þessu starfsári verða í Hömrum, sal Tónlistarskólans, laugardaginn 8. október kl. 16. Nú er virkilega ástæða til að fá sér áskrift, en þar koma fram Gunnar Kvaran sellóleikari og Jane Ade Sutarjo píanóleikari. Þau flytja...