Sunna Karen og Graduale Nobili í Hömrum 2. mars kl. 16.

22. febrúar 2024 | Fréttir, Hamrar, Tónlistarfélagið

Sunna Karen og Graduale Nobili í Hömrum laugardaginn 2. mars kl. 16.

Graduale Nobili var stofnaður um aldamótin af Jóni Stefánssyni organista og tónlistarfrömuði í Langholtskirkju og hefur skipað sér sess meðal farsælustu kóra Íslands. Kórinn skipa 26 meðlimir á aldrinum 18-26 ára. Kórstjóri Graduale Nobili er Ísfirðingurinn Sunna Karen Einarsdóttir.

Á efnisskránni er úrval kórverka sem öll með sínum hætti heiðra Maríu Guðsmóðir, eftir tónskáld á borð við Atla Heimi Sveinsson, Báru Grímsdóttur, Jón Nordal, Hildigunni Rúnarsdóttur, Edvard Grieg og Michael McGlynn.

Tónleikarnir fara fram í Hömrum, sal Tónlistarskóla Ísafjarðar og eru styrktir af Tónlistarfélagi Ísafjarðar.

Aðgangur ókeypis og öll hjartanlega velkomin!

.

Kórinn Graduale Nobili heimsækir Ísafjörð!

Kórinn Graduale Nobili heimsækir Ísafjörð – tónleikar í Hömrum 2. mars

 

Sunna Karen Einarsdóttir