Skólaslit Tónlistarskólans 2024 – myndir

30. maí 2024 | Fréttir

Bergþór sagði þ hafa verið mikið gæfuspor gerast Ísfirðingur fyrir fjórum árum, móttökurnar og kynnin af þessu kraftmikla og fallega samfélagi hefðu verið einstaklega gefandi og þeir Albert færu ekki aðeins með þakklæti fyrir vináttuna í huga, heldur líka söknuð í brjósti.

Skólaslit Tónlistarskólans 2024

Tónlistarskóla Ísafjarðar var slitið við hátíðlega athöfn í Ísafjarðarkirkju í dag. Bergþór Pálsson skólastjóri sagði þ hafa verið mikið gæfuspor gerast Ísfirðingur fyrir fjórum árum, móttökurnar og kynnin af þessu kraftmikla og fallega samfélagi hefðu verið einstaklega gefandi og þeir Albert færu því héðan ekki aðeins með þakklæti fyrir vináttuna í huga, heldur líka söknuð í brjósti. Þeir væru þó stoltir af því að skila góðu búi til nýs skólastjóra. Þá fór hann yfir nokkur atriði sem upp úr stæðu í vetur, hádegistónleikana með fyrrverandi nemendum skólans, Heimilistóna, ferð Skólakórsins á kóramót í Danmörku og síðast en ekki síst uppsetningu á Fiðlaranum á þakinu ásamt Litla leikklúbbnum.

Viðurkenningar voru veittar fyrir góða ástundun í útibúum, grunnpróf í tónfræði og hljóðfæraleik, Ísfirðingaverðlaunin hlaut Guðrún Hrafnhildur Steinþórsdóttir, en hún tók glæsilegt miðpróf í vor, spilar bæði á flautu og píanó, spilaði með glæsibrag á Nótunni á Akranesi og er öflugur liðsmaður lúðrasveitarinnar. Aðalverðlaun HG hlaut Matilda Mäekalle, en hún tekur framhaldspróf á næsta ári, spilar á píanó, trompet, bassa, spilaði sömuleiðis með glæsibrag á Nótunni á Akranesi, einnig spilaði hún á hljómborð í Fiðlaranum á þakinu.

Beáta Joó hlaut heiðursverðlaun Tónlistarskólans fyrir störf sín. MEIRA HÉR.

Ýmis tónlistaratriði voru á dagskránni. Skólalúðrasveitin hóf hátíðina með þema úr Jesus Christ Superstar, Guðrún Hrafnhildur Steinþórsdóttir, handhafi Ísfirðingaverðlaunanna, lék Serenöðu eftir Moritz Moszkowski, Matilda Mäekalle, handhafi aðalverðlaunanna sem veitt eru af HG, lék Rustle of Spring eftir Christian Sinding. Hátíðargestir sungu saman Ó blessuð vertu sumarsól. Í lokin söng Bergþór My Way með Skólalúðrasveitinni.

Myndirnar tók Haukur Sigurðsson.

Hátíðleg og falleg skólaslit í Ísafjarðarkirkju. Gleðilegt sumar 

🎶 🇮🇸 🎶

Beáta Joó hlaut heiðursverðlaun Tónlistarskólans fyrir störf sín

.

Skólalúðrasveitin hóf skólasetningahátíðina með þema úr Jesus Christ Superstar

.

Guðrún Hrafnhildur Steinþórsdóttir, handhafi Ísfirðingaverðlaunanna, lék Serenöðu eftir Moritz Moszkowski

 

Matilda Mäekalle, handhafi aðalverðlaunanna sem veitt eru af HG, lék Rustle of Spring eftir Christian Sinding.

Fjölmargar viðurkenningar voru afhentar. Hér eru Saga og Sædís Ylfa taka við sínum.

.

Guðrún Hrafnhildur Steinþórsdóttir, handhafi Ísfirðingaverðlaunanna tekur við viðurkenningunni.

.

Steinþór Bjarni Kristjánsson formaður Tónlistarfélags Ísfirðinga þakkaði fráfarandi skólastjórnendum og kynnti nýjan skólastjóra, Bjarneyju Ingibjörgu.

.

Rúna Esradóttir og Bjarney Ingibjörg afhentu Bergþóri gjöf frá starfsfólki Tónlistarskólans, ljósmynd af Ísafirði sem Haukur Sigurðsson tók.

.

Í lokin tóku gestir hraustlega undir í Ó blessuð vertu sumarsól við undirleik Bergþórs.

.

Hefð er fyrir því að syngja Ó blessuð vertu sumarsól við skólaslit Tónlistarskólans.

.

Í lokin kvaddi Bergþór með því að syngja My Way með blásarasveit skólans.

🎶 🇮🇸 🎶

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is