Skólasetning Tónlistarskólans 2023

28. ágúst 2023 | Fréttir, Hamrar

Bergþór Pálsson skólastjóri setti skólann og minntist Sigríðar Ragnarsdóttur fv. skólastjóra sem lést í gær.

Bergþór Pálsson skólastjóri setti skólann og minntist Sigríðar Ragnarsdóttur fv. skólastjóra sem lést í gær.

 

Skólasetning Tónlistarskólans

Fjölmenni var í dag á skólasetningu Tónlistarskóla Ísafjarðar. Bergþór Pálsson skólastjóri minntist Sigríðar Ragnarsdóttur fyrrverandi skólastjóra sem lést í gær. Einnig fór hann yfir það helsta sem er framundan í vetur, má þar nefna Heimilistóna, opið hús og þátttöku skólans í Fiðlaranum á þakinu.

Aron Ottó Jóhannsson og Bea Joó fluttu Nótt eftir Árna Thorsteinson í minningu Sigríðar Ragnarsdóttur. Mikolaj Ólafur Frach, nýr kennari við skólann, spilaði Ballöðu nr. 1 í g-moll eftir Chopin.

Í lokin var hraustlega tekið undir í Í faðmi fjalla blárra og gestir gæddu sér á pönnukökum.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá á morgun, þriðjudaginn 29. ágúst.

Skóladagatal Tónlisatarskólans er HÉR og viðburðadagatalið HÉR.

Við setjum reglulega eitt og annað inn á Facebook síðu skólans.

Skólasetningarræða 2023

🙂

Gestir tóku hraustlega tekið undir í Í faðmi fjalla blárra

Mikolaj Ólafur Frach, nýr kennari við skólann, spilaði Ballöðu nr. 1 í g-moll eftir Chopin.

Aron Ottó Jóhannsson og Bea Joó fluttu Nótt eftir Árna Thorsteinson í minningu Sigríðar Ragnarsdóttur

Hraustlega var tekið undir í Í faðmi fjalla blárra

Gestir gæddu sér á pönnukökum í lokin.