Sylvía Lind Jónsdóttir – tónleikar í Hömrum 9.des. kl 20

6. desember 2023 | 75 ára afmælið, Fréttir, Hamrar

Sylvía Lind Jónsdóttir – tónleikar í Hömrum laugardaginn 9. desember kl 20.

Sylvía Lind Jónsdóttir er fædd og uppalin á Flateyri. Hún hefur stundað söngnám frá unglingsaldri við Tónlistarskóla Ísafjarðar og heldur núna kveðjutónleika þar sem hún heldur á vit nýrra ævintýra eftir áramótin. Sylvía Lind hefur tekið þátt í undankeppnum Samfés, verið fulltrúi Menntaskólans á Ísafirði í söngvakeppni framhaldsskólanna ásamt því að taka þátt í Idol.
Hún lék í tveimur sýningum á Sólrisuleikritum MÍ, “Ekki um ykkur” og “Rocky Horror Picture Show”.
Sylvía Lind hefur verið syngjandi allt frá barnæsku og komið fram við ýmiss konar tækifæri.

Á þessum kveðjutónleikum sem fram fara í Hömrum laugardaginn 9. desember kl. 20 flytur hún nokkur af sínum uppáhaldslögum og fær til sín góða gesti sem taka lagið með henni.

Verið velkomin – aðgangur ókeypis

Efnisskráin: Sylvía Lind 9.12

Sylvía Lind Jónsdóttir – tónleikar í Hömrum laugardaginn 9. desember kl 20.