Berta Dröfn og Svanur með tónleika í Hömrum

12. september 2022 | Fréttir, Hamrar

Berta Dröfn Ómarsdóttir sópran og Svanur Vilbergsson gítarleikari flytja efnisskrá byggða á þjóðlögum frá Íslandi, Frakklandi, Spáni og Búlgaríu, í Hömrum tónleikasal Tónlistarskóla Ísafjarðar föstudaginn 23. september.

Um listafólkið:
Berta Dröfn Ómarsdóttir sópran og Svanur Vilbergsson gítarleikari hafa m.a. komið fram saman á Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði, Óperudögum í Reykjavík, Listahátíð Samúels Jónssonar og á Skriðuklaustri, þar sem þau fluttu nýlega ljóðaflokkinn The Divan of Moses Ibn Esra eftir Mario Castelnuovo Tedesco í heild sinni. Berta og Svanur eru forsvarsmenn listahópsins Mela sem staðið hefur að fjölmörgum frumflutningum á nýrri tónlist og ber þar helst að nefna óperuna Ravens Kiss eftir tónskáldið Evan Fein sem sett var upp á Seyðisfirði 2019 og frumflutning á verkinu Nóttin, komin til að vera eftir Friðrik Margrétar – Guðmundsson við ljóð Ingunnar Snædal.
Aðgangseyri: 2.500 kr.

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is