VORTÓNLEIKARÖÐ Tónlistarskólans

9. maí 2014 | Fréttir

Maímánuður er sannarlega uppskerutími hljóðfæranemenda og bjóða þeir að venju öllum á tónleika til að njóta afraksturs vetrarstarfsins. Eins og undanfarin ár er fjöldi tónleika á vegum skólans, hinir hefðbundnu tónleikar hljófæranema, söngnema, öldunga og tónleikar í útibúum á Flateyri og Þingeyri. Lúðrasveitir skólans hófu vortónleikaröðina með skemmtilegum tónleikum í Ísafjarðarkirkju 7. maí síðastliðinn. 

 

Vortónleikaröðin: 

Mánudaginn 12. maí Vortónleikar tónlistarnema á Flateyri í sal Arctic Odda kl. 18:00

Mánudaginn 12. maí Vortónleikar söngnema og öldunga í Hömrum kl. 19:30

Þriðjudaginn 13. maí Vortónleikar I í Hömrum kl. 18:00 Æfing kl. 14:15

Þriðjudaginn 13. maí Vortónleikar II í Hömrum kl. 19:30 Æfing kl. 15:30

Miðvikudaginn 14. maí Vortónleikar III í Hömrum kl. 19:30 Æfing kl. 15:30

Fimmtudaginn 15. maí Vortónleikar IV Í Hömrum kl. 18:00 Æfing kl. 14:15

Fimmtudaginn 15. Maí Vortóleikar V í Hömrum kl. 19:30 Æfing kl. 15:30

 

Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt enda nemendur á ýmsum stigum tónlistarnáms og leika á hin fjölbreyttustu hljóðfæri.  Allir eru boðnir hjartanlega velkomnir á þessa tónleika.

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is