VORÞYTUR lúðrasveitanna í Ísafjarðarkirkju

3. maí 2012 | Fréttir

Lúðrasveitir Tónlistarskóla Ísafjarðar halda sína árlegu vortónleika í Ísafjarðarkirkju nk. miðvikudag 9.maí kl. 20. Tónleikarnir bera yfirskriftina Vorþytur enda má segja að sveitirnar séu að blása vorið í bæinn.

Lúðrasveitir skólans eru nú þrjár. Skólalúðrasveitin, sem skipuð er grunnskólanemum sem jafnframt stunda nám við skólann, en einnig leika með henni nokkrir nemendur 5.bekkjar, sem eru í sérstöku samvinnuverkefni tónlistarskólans og grunnskólans.

Miðsveitin er minni sveit,skipuð lengra komnum nemendum og loks Lúðrasveit T.Í. en hana skipa nemendur ásamt reyndum tónlistarmönnum sem eru ómetanlegur stuðningur við sveitina auk þess sem þeir skreyta tónlistarflutninginn með listrænum tilbrigðum. Efnisskrá lúðrasveitanna er í léttari kantinum, lög eftir m.a. Phil CCollins, Michael Jackson, Bacharach, Adele og Magnús Kjartansson. Stjórnandi allra sveitanna er Madis Mäekalle, sem einnig hefur útsett og aðlagað flest lögin.

 

Gestir lúðrasveitanna á tónleikunum eru gítarkvintett og trommuhópur skólans. það er Sig.Friðrik Lúðvíksson sem æft hefur gítarkvintettinn sem leikur lög ættuð frá Spáni.  Trommuhópurinn er í umsjón Önundar H. Pálssonar og skipaður trommunemendum skólans.

 

Aðgangseyrir að tónleikunum á miðvikudag er 1000 krónur fyrir fullorðna og 500 krónur fyrir börn 12 ára og yngri og rennur hann í sjóð lúðrasveitanna.

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is