VORSÖNGVAR barnakóranna

4. maí 2015 | Fréttir

Vortónleikar barnakóra Tónlistarskóla Ísafjarðar verða haldnir í Hömrum nk. fimmtudag 7.maí kl. 18:00. Í skólanum starfa nú þrír barnakórar: kór barna í 1.-2.bekk, kór barna í 3.-4.bekk og loks kór barna í 5.-7.bekk. Dagný Arnalds stjórnar kórunum í 1.-4.bekk en Bjarney ingibjörg Gunnlaugsdóttir kór5.-7.bekkjar.  Í kórunum eru alls um 40 börn sem flest syngja með á tónleikunum.  Meðleik með kórunum á píanó annast Hulda Bragadóttir.

Á fjölbreyttri dagskránni eru lög úr ýmsum áttum, en aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

 

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is