Velheppnað þjóðlaganámskeið á Þingeyri

25. október 2010 | Fréttir

Á laugardaginn var stóð Tónlistarskólinn fyrir námskeiði í þjóðlagatónlist sem haldið var í Félagsheimilinu á Þingeyri. Þátttakendur voru 11 talsins, frá Þingeyri, Ísafirði og bíldudal, en kennarar var eistneska tónlistarkonan Krista Sildoja, en hún er einmitt sérfræðingur í þjóðlegri tónlist.  Þátttakendurnir sungu og dönsuðu og léku á hljóðfærin sín, sem voru fiðlur, harmóníkur, hljómborð, gítar, banjó og mandólín.  Lögin sem æfð voru voru frá Írlansi, Eistlandi, Íslandi og Bandaríkjunum. Námskeiðið var í tilefni af menningarhátíðinni Veturnætur í Ísafjarðarbæ.

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is