Vel heppnaðir tónleikar Davíðs

19. maí 2015 | Fréttir

Í gærkvöld hélt hinn ungi tónlistarmaður Davíð Sighvatsson ákaflega vel heppnaða tónleika í Hömrum. Dagskráin var óvenju fjölbreytt, klassík í bland við  vinsæla popptónlist og svo lög eftir Davíð sjálfan.  Hann söng í mörgum laganna, lék á píanó, gítar og ukulele auk þess sem hann kynnti alla dagskrána á afar lifandi og persónulegan hátt. Davíð hefur stundað nám við Tónlistarskóla Ísafjarðar frá unga aldri og lært á ýmis hljóðfæri. Í seinni tíð hefur þó píanóið verið aðalhljóðfæri hans ásamt söngnum. Langt er síðan Davíð fór að fást við lagasmíðar og hafa þær átt hug hans allan síðustu árin. Nú hefur hann fengið inngöngu í tónlistardeild Listaháskóla Íslands þar sem hann hyggst leggja stund á tónsmíðar næsta vetur.
Meðfylgjandi mynd var tekin á tónleikunum í gær með nokkrum af kennurum hans við skólann: Frá vinstri: Elín Jónsdóttir, Beáta Joó, Davíð, Ingunn Ósk Sturludóttir og Iwona Frach.

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is