Undurfagrir ljóðaflokkar í Hömrum á sunnudag.

10. apríl 2012 | Fréttir

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona og Gerrit Schuil píanóleikari halda ljóðatónleika í Hömrum ísunnudaginn 15.apríl kl. 15:00. Á efnisskránni eru tveir af fegurstu ljóðaflokkum tónbókmenntanna sem samdir hafa verið fyrir kvenrödd, Stúlkan á heiðinni (Haugtussa) eftir Edvard Grieg og Sumarnætur (Les nuits d´été) eftir Hector Berlioz.   Tónleikarnir eru áskriftartónleikar á vegum Tónlistarfélags Ísafjarðar og áskriftarkort gilda en einnig eru seldir miðar við innganginn á kr. 2.000, 1.000 fyrir eldri borgara og nemendur.
Hallveig og Gerrit eru bæði vel þekkt fyrir flutning sinn á ljóðasöngvum. Hallveig hefur haldið fjölda ljóðatónleika hér á landi og erlendis og hvarvetna vakið mikla athygli fyrir frábæran flutning og túlkun. Gerrit, sem er einn af okkar helstu ljóðameðleikurum, hlaut í fyrra Íslensku tónlistarverðlaunin ásamt Ágústi Ólafssyni bassa fyrir futning þeirra á ljóðaflokkum Schuberts. 
Þessa dagana eru þau á tónleikaferðalagi um landið með tilstyrk frá Kraumi-Tónlistarsjóði og frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu.