Tónlistarhátíðin Við Djúpið er hafin

21. júní 2011 | Fréttir

Tónlistarhátíðin Við Djúpið hófst kl. 8:40 í morgun með jógaæfingum fyrir þátttakendur í gamla íþróttahúsinu á Ísafirði. Masterklassar í fiðlu og píanóleik hófust strax í kjölfarið og fyrstu tónleikarnir verða í Hömrum í kvöld þriðjudagskvöldið 21.júní kl. 20:00.

Það er sellóleikarinn Sæunn Þorsteinsdóttir sem ríður á vaðið og flytur glæsilega einleiksdagskrá, sellósvítu nr. 3 eftir Bach, sellósvítu eftir Benjamin Britten og nýtt verk eftir Kendall Briggs.

Sæunn Þorsteinsdóttir hefur komið fram sem einleikari og flytjandi kammertónlistar víðsvegar um heiminn, meðal annars með Itzhak Perlman, Kim Kashkashian, Cavani kvartetinum, Jupiter Symphony Chamber Players og meðlimum Guarneri-kvartettsins.  Hún hefur unnið til verðlauna fyrir leik sinn og frumflutt fjölmörg verk, m.a. verk sérstaklega samin fyrir hana eftir Daníel Bjarnason og Nicholas Csicsko.

 

Mikið fjör og líf er í tónslistarskólanum þessa dagana, fullt af ungu fólki og efnilegum listamönnum við æfingar, nam og kennslu. Framundan er ótrúlega flott dagskrá tónleika og masterklassa, sem vestfirskir tónlistarunnendur eru hvattir til að nýta sér. Svo er jógatímarnir sem ekki má gleyma!

 

Hér er tónleikalisti hátíðarinnar:

 

Þriðjudagur 21. júní

Opnunartónleikar í Hömrum kl. 20:00 – Sæunn Þorsteinsdóttir, selló

 

Miðvikudagur 22. júní:

Hádegistónleikar kl. 12:10 í grunnskólaanddyrinu – Óbóleikur

Hátíðartónleikar kl. 20 í Hömrum – píanóleikur – fjórhent

 

Fimmtudagur 23.júní

Hádegistónleikar kl. 12:10 í grunnskólaanddyrinu – söngur og píanó

Tónleikar kl. 20 í Hömrum – Ensemble ACJW – óbókvartett frá New York

 

Föstudagur 24.júní

Hádegistónleikar kl. 12:10 í grunnskólaanddyrinu – Duo Harpwerk – fjölbreytt slagverk og harpa

Jónsmessutónleikar kl. 20 í Hömrum – fiðla og píanó

Miðnæturtónleikar kl. 23 í Minjasafninu í Neðstakaupstað – harmóníka

 

Laugardagur 25.júní

Hádegistónleikar kl. 12:00 í Hömrum – Tangóveisla

Nemendatónleikar í Hömrum kl. 14:00 – nemendur sem voru á námskeiðunum

Tónleikar kl. 17 í Hömrum – Ensemble ACJW flytur verk eftir 3 ung tónskáld

 

Sunnudagur 26.júní

Nemendatónleikar kl. 13 í Hömrum – nemendur sem voru á námskeiðunum

Lokatónleikar kl 16 í Hömrum í beinni útsendingu RÁSAR 1 – Listamenn hátíðarinnar koma fram