Tónlistarhátíð í tengslum við Dag tónlistarskólanna

18. mars 2009 | Fréttir

Tónlistarskóli Ísafjarðar efnir til Tónlistarhátíðar æskunnar á næstu dögum í tilefni af Degi tónlistarskólanna, en dagurinn verður haldinn hátíðlegur um land allt til að vekja athygli almennings og stjórnvalda á því mikla starfi, sem fram fer í tónlistarskólunum. Dagskráin er fjölbreytt, samleikstónleikar, samsöngur, skólatónleikar og fleira.

 

Dagskráin hefst á morgun, fimmtudaginn 26.febrúar, með heimsókn Barnakórs skólans og nokkurra ungra hljóðfæraleikara á Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði.

 

Í tónlistarsalnum Hömrum á Ísafirði, verða tvennir nemendatónleikar af  þessu tilefni, fimmtudagskvöldið 26.febrúar kl. 19:30 og laugardaginn 28.febrúar kl. 16:00. Um er að ræða viðamikla tónleika með mismunandi efnisskrám, þar sem aðaláherslan er lögð á samleik nemenda. Á dagskránni eru um 60 atriði og kennir þar margra ólíkra grasa, gömul tónlist og ný, klassísk og poppuð – lúðrasveit, strengjasveit, hópar af ýmsum stærðum og gerðum auk kórsöngs – fjölbreytninni eru lítil takmörk  sett.

 
Styrktarsjóður Tónlistarskóla Ísafjarðar selur veitingar í tónleikahléi  en aðgangur að tónleikunum er ókeypis og öllum heimill enda eru þeir ekki hvað síst haldnir til kynningar á starfi skólans fyrir foreldra og aðra velunnara.

 

Miðvikudagskvöldið 4. mars halda nemendur í útibúum skólans á Suðureyri og Flateyri sameiginlega tónleika í mötuneyti Eyrarodda á Flateyri.

 

Föstudaginn 6.mars verða í Hömrum skólatónleikar fyrir nemendur 4., 6. og 8.bekki Grunnskólans á Ísafirði. Haldnir verða þrennir tónleikar á skólatíma, þar sem tónlistarnemar í hverjum árgangi fyrir sig leika fyrir kennara sína og bekkjarfélaga.

 

Tónlistarhátíðinni lýkur í hádeginu á föstudeginum 6.mars þegar tónlistarkennarar bjóða bæjarbúum til fjöldasöngs á göngum Stjórnsýsluhússins. Þar verða tekin nokkur hress og skemmtileg lög við allra hæfi en þetta verður í 4. sinn í vetur sem efnt verður til samsöngs af þessu tagi í Stjórnsýsluhúsinu.
 

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is