Svæðisþing kennara – kennsla fellur niður föstudag

8. september 2011 | Fréttir

Föstudaginn 9.september verða haldin svæðisþing kennara á Vestfjörðum og kennsla fellur niður – einnig í tónlistarskólum.

Tónlistarskólakennarar sækja sitt svæðisþing að þessu sinni til Bolungarvíkur og verður þar fjallað um ýmis þau efni, sem efst eru á baugi í tónlistarskólum.  M.a. verður fjallað um reynsluna af áfangaprófakerfi tónlistarskólanna, heildstæða kennslu í tónfræðagreinum og hljóðfæraleik, nýlega kjarasamninga tónlistarkennara og loks verður kennurum boðið að taka þátt í tónsköpunarsmiðju undir leiðsögn Tryggva M. Baldvinssonar tónskálds.

 

Óhjákvæmilegt er að fella niður kennslu af þessum sökum og eru nemendur og forráðamenn beðnir að sýna því skilning.

 

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is