

Það er okkur mikið ánægjuefni að bjóða á ný upp á námskeið fyrir grunnskólabörn á hátíðinni í sumar. Leiðbeinendurnir eru Ísfirðingurinn Sunna Karen Einarsdóttir og samstarfskona hennar við kórana í Langholtskirju, Björg Þórsdóttir. Kennt verður 18.–21. júní en námskeiðnu lýkur með tónleikum sun. 21. júní kl. 13. Skráning og nánari upplýsingar á www.viddjupid.is/sumarnamskeid.