Skólastarf byrjað á nýju ári

5. janúar 2012 | Fréttir

 Skólastarfið í Tónliostarskóla Ísafjarðar hófst miðvikudaginn 4.janúar eins og í öðrum skólum. Nokkrir kennarar (Bjarney Ingibjörg, Dagný, Messíana, Janusz, Iwona) eru þó fjarverandi fyrstu kennsludagana vegna tónlistarnámskeiða eða af persónulegum ástæðum en þeir munu bæta þá tíma upp síðar eftir bestu getu. Á Þingeyri hefst kennsla  þriðjudaginn 10.janúar, en þar var kennt lengur í desember.

Stundatöflur þarf einnig oft að endurskoða eftir áramót, þar sem menntaskólanemar og sumir grunnskólanemar fá breyttar töflur á þessum tíma. 

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is