Skólakór Tónlistarskólans á Norbusang

12. maí 2024 | Fréttir

Skólakór Tónlistarskólans á leið á Norbusang í Fredericia á Jótlandi í Danmörku. Tónlistarskóli Ísafjarðar Skólakórinn

Skólakór Tónlistarskólans á leið á Norbusang í Fredericia á Jótlandi í Danmörku.

Skólakór Tónlistarskólans á Norbusang

Það má með sanni segja að Skólakór Tónlistarskólans hafi slegið í gegn á norrænu kórahátíðinni Norbusang sem haldin var í Fredericia á Jótlandi í Danmörku 8. – 12. maí sl. undir stjórn Bjarneyjar Ingibjargar kórstjóra.

Skólakórinn tók þátt í vinnusmiðjum, hélt tónleika bæði einn og sér og líka með öðrum kórum.

Vaskur hópur foreldra hefur haft veg og vanda af fjármögnun ferðarinnar með stúlkunum sem hafa sungið við ýmis tækifæri í vetur, selt kaffi og kökur, jólamerkimiða svo eitthvað sé nefnt. Við erum þakklát öllum sem studdu ferðalag Skólakórsins – takk, takk, takk 🙂

Þá voru fararstjórar úr hópi foreldra sem bókstaflega mössuðu skipulagið og brugðust fumlaust og örugglega við öllu sem upp kom.

Vortónleikar Skólakórsins verða í Hömrum fimmtudaginn 16. maí kl. 19. Eftir tónleikana verða seldar pottaplöntur til styrktar Skólakórnum.
MEIRA HÉR.

🇩🇰 🇮🇸

Setning kóramótsins

🇩🇰 🇮🇸

Sungið í St. Michaelis kirkjunni

🇩🇰 🇮🇸

Allir kórarnir í vinnusmiðju

🇩🇰 🇮🇸

Jana, Þóra Marý, Erla Rún, Anna María og Fanný Margrét á tónleikum í í St. Michaelis kirkjunni.

🇩🇰 🇮🇸

Eftir tónleika í Christians kirkjunni

🇩🇰 🇮🇸

Judy, Bjarney Ingibjörg og Erla Rún

Á heimleiðinni var komið við í Tívolíinu í Kaupmannahöfn

🇩🇰 🇮🇸

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is