Samsöngurinn fyrir páska heppnaðist svo vel að við ætlum að endurtaka leikinn á miðvikudaginn kl. 17.
Öllum er boðið að koma og syngja saman í Hömrum, sal Tónlistarskóla Ísafjarðar í fjöldasöng miðvikudaginn 27. apríl kl. 17. Textum verður varpað upp. Boðið verður upp á vöfflur.
Undirleikur og forsöngur: Bergþór Pálsson, Rúna Esradóttir og Pétur Örn Sigurðsson
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir!

Ágústa bakaði vöfflur fyrir gesti

Samsöngur í Hömrum

Bergþór stjórnaði fjöldasöng