Rolling Stones sýning í Safnahúsinu

30. október 2012 | Fréttir

 Sýning á safni Guðmundar Níelssonar af munum tengdum Rolling Stones verður opnuð í Safnahúsinu á Ísafirði fimmtudaginn 1.nóv. kl. 16:00.

Hljómsveitin á 50 ára afmæli á árinu en Guðmundur hefur lengi verið aðdáandi sveitarinnar og í safni hans kennir ýmissa grasa.