Rähni-hjónin halda tónleika í Hömrum á pálmasunnudag

5. apríl 2011 | Fréttir

Á pálmasunnudag, 17.apríl, kl. 16:00 verða kammertónleikar í Hömrum. Það eru tónlistarhjónin Selvadore og Tuuli Rähni sem leika á klarinett og píanó verk eftir Brahms, Busoni, Lutoslawski og Tsjaikovsky. Aðgangseyrir er kr. 2.000, kr. 1.500 fyrir lífeyrisþega , en ókeypis fyrir skólanema 20 ára og yngri.

Tónleikarnir eru haldnir í samvinnu listamannanna og Tónlistarfélags Ísafjarðar.

Kunnasti klarinettleikari Eistlendinga, Selvadore Rähni,  stundaði nám í klarinettleik  hjá ýmsum kennurum í Tallinn, Eistlandi og á árunum 1986-1991 var nemandi Rein Karin og Vahur Vurm við Tónlistarháskólann í Tallinn. Hann hélt klarinettnáminu áfram hjá Prof. Wolfgang Meyer við Tónlistarháskólann í Karlsruhe, Þýskalandi, og lauk þaðan doktorsprófi með hæstu einkunn vorið 2001. hann hefur einnig sótt tíma hjá ýmsum þekktum klarinettleikurum s.s. Alan Damiens, Miche Arrignon, Sabine Meyer og Rainer Wehle.  Á námsárunum hlaut Selvadore fjölmörg verðlaun og viðurkenningar fyrir frábæran námsárangur og hljóðfæraleik.
Selvadore hefur starfað víða um heim, bæði sem einleikari og sem hljómsveitarleikari. Hann bjó í Japan í átta ár, 1997-2005,  og gegndi þá hinu eftirsótta starfi sem  1.klarinettleikari Sinfóníuhljómsveitar Kyoto-borgar. Hann hefur leikið einleik með mörgum þekktum hljómsveitum, s.s. Sinfóníuhljómsveit Berlínar, Sinfóníuhljómsveitar Kyoto-borgar og Pólsku kammersveitinni.  Hann hefur komið fram á tónleikum sem einleikari og í kammertónlist síðs vegar í Evrópu og Japan, m.a. á mörgum tónlistarhátíðum.
Selvadore hefur haldið master-class námskeið f. klarinettleikara m.a. við Tónlistarháskólann í Karlsruhe, í Tortosa á Spáni og í Kyoto, Japan. Þá hefur hann fengist talsvert við tónsmíðar og í fyrra kom út bók með píanólögum eftir hann.
Haustið 2005 fluttist Selvadore ásamt fjölskyldu sinni til Íslands og settust þau að á Laugum í Þingeyjarsýslu, þar sem hann var skólastjóri Tónlistarskólans í fimm ár. Hann starfar nú sem skólastjóri Tónlistarskólans í Bolungarvík.
 
Tuuli Rähni stundaði nám í píanóleik frá unga aldri í Tallinn, Eistlandi. Á árunum 1986-1991 var hún nemandi Prof. Peep Lassmann við Tónlistarháskólann í Tallinn og lauk þaðan námi með hæstu einkunn. Á árunum 1991-1997 stundaði hún tónlistarnám við Tónlistarháskólann í Karlsruhe, Þýskalandi. Árið 1995 lauk hún þar meistaragráðu í einleik á píanó undir leiðsögn Prof. Gunther Hauer og tveim árum síðar meistaragráðu í píanókammertónlist hjá Prof. Werner Genuit. Hún hlaut ýmsar styrki og viðurkenningar á námsferlinum, og komst í úrslit í „Maria Canals“ píanókeppninni á Spáni.
Tuuli hefur komið fram sem einleikari og í kammertónlist víða um Evrópu (Eistlandi, Bretlandi, Frakklandi, Þýskalandi, Júgóslavíu, Rússlandi og Íslandi) og ennig í Japan, þar sem hún var búsett í mörg ár.  Hún hefur einnig komið fram í þýsku og eistnesku útvarpi og sjónvarpinu í Eistlandi.  Þá hefur hún leikið kammertónlist með eiginmanni sínum í meir en tvo áratugi.
Tuuli kenndi á píanó við Kyoto-konservatoríið á árunum 2001-2005. Haustið 2005 fluttist hún ásamt fjölskyldu sinni til Íslands og settust þau að á Laugum í Þingeyjarsýslu. Þar kenndi hún á píanó við tónlistarskólann, var organisti og starfaði sem meðleikari. Tuuli býr nú í Bolungarvík.