OPIÐ HÚS laugardaginn 24.OKTÓBER

11. október 2015 | Fréttir

Tónlistarskóli Ísafjarðar tekur að venju þátt í menningarhátíðinni VETURNÓTTUM, nú með OPNU HÚSI, með þáttöku allra kennara laugardaginn 24,október kl.13-15:30.
Dagskráin verður afar fjölbreytt og hefst með lúðraþyt Lúðrasveitar TÍ í Samkaup kl. 13, en að öðru leyti fer hún fram í húsnæði skólans að Austurvegi 11: Í tónlistarsalnum Hömrum, á göngum og í kennslustofum skólans.
Í Hömrum verða nokkrir stuttir tónleikar, þar sem ýmsir hópar koma fram: Forskólinn og kórarnir flytja nokkur lög, Strengjasveitin flytur nokkur lög úr hinu sívinsæla verki Prokofieffs, Pétri og úlfinum, Skólalúðrasveitin og Miðsveitin  spila af sínum þekkta krafti, gítarhópur og trommuhópar leika og loks verður gestum boðið að taka þátt í „Singalong“, fjöldasöng með ýmsum þekktum lögum.
Kennarar verða í stofum sínum og þar verður boðið upp á hljófæraleik og spjall um tónlist og tónlistarkennslu, en á göngum skólans verður ljósmyndum og gömlum tónleikaupptökum varpað á skjái.
Allir bæjarbúar eru hjartanlega velkomnir á Opna húsið í Tónlistarskólanum en þess er auðvitað sérstaklega vænst að nemendur og aðstandendur þeirri komi í heimsókn.

Myndin var tekin í Samkaup á Veturnóttum haustið 2011.