Nótan á Patreksfirði

29. apríl 2026 | Fréttir

Það voru kátir nemendur Tónlistarskóla Ísafjarðar sem tóku á sig ferðalag til að taka þátt í svæðistónleikum Nótunnar sem haldnir voru 18.maí á Patreksfirði. Frá skólanum tóku 19 nemendur þátt í tónleikunum. Flestir nemendur og fararstjórar fóru með rútu þann 17.maí til að taka þátt í sameiginlegri æfingu en nokkrir bættust í hópinn daginn eftir með foreldrum sínum sem tóku á sig ferðalag og keyrðu með þau til Patreksfjarðar.  Þar tók einstaklega fallegt veður á móti okkur báða dagana sem gerði mikið fyrir ferðina því nemendur nutu þess á ýmsan hátt með útiveru og sundferð. Gist var í grunnskólanum og var öll aðstaða þar til fyrirmyndar. Svæðistónleikar Nótunnar fóru svo fram í félagsheimilinu og eftir vel heppnaða tónleika bauð Kvennfélagið á Patreksfirði upp á glæsilegar veitingar. Sú nýbreyttni var á þessum tónleikum að allir þátttakendur frá öllum skólunum sameinuðust í sampili og spiluðu lagið Rock around the Clock sem heppnaðist ákaflega vel unndir dyggri stjórn Madisar Mäekalle sem einnig útsetti lagið fyrir hljómsveitina. Frá okkar skóla komu svo tvö atriði, annarsvegar spiluðu nemendur úr Ísófóníunni lagið Born free undir stjórn Madisar og hinsvegar fluttu fjórir píanónemendur Beötu Joó átthent á tvö píanó lagið Champagne Toccata eftir W.Gillock. Nemendur skólans stóðu sig með stakri prýði og voru skólanum til mikillar fyrirmyndar.

Að lokum viljum við þakka Kristínu Mjöll skólastjóra tónlistarskóla Vesturbyggðar kærlega fyrir höfðinglegar móttökur og frábært skipulag.

Hér má svo sjá myndir sem teknar voru á æfingu og á tónleikum..

Frá æfingu í Hömrum fyrir Svæðistónleika Nótunnar

Matilda, Katrín Lísa, Jökull og Guðrún Hrafnhildur

Nemendur Tónlistarskóla Ísafjarðar að flytja lagið Born free

Trompetleikararnir

Básúnu og saxafón gengið

Kræsingar í boði Kvennfélagsins eftir tónleikana

Kræsingunum var gerð góð skil.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is

Nýlegar færslur