Munið! Heitt kakó, lummur og aðventustemming á Silfurtorgi kl. 15.00 á morgun!

18. mars 2009 | Fréttir

Jólatorgsala Styrktarsjóðs Tónlistarskólans er orðinn ómissandi liður í jólahaldi Ísfirðinga og nágranna. Hún er jafnframt stærsti liðurinn í fjáröflun Styrktarsjóðsins.  Að venju voru  steiktar mörg hundruð laufabrauðskökur, sem seldar verða á torginu ásamt  alls konar varningi sem velunnarar skólans gefa honum af miklu örlæti og eiga þeir innilegar þakkir skilið. 

   
Enn á ný er leitað til nemenda tónlistarskólans og foreldra,  um að gefa varning á torgsöluna, tertur, smákökur, jólasælgæti, jólasíld, föndur eða annað sem ykkur kann að detta í hug. Tekið verður á móti framlögum í anddyri nýja Grunnskólans laugard. kl. 12-13.