Listaháskólanemar væntanlegir í árlega heimsókn

11. september 2012 | Fréttir

Mánudaginn 24.september nk er von á 22 nýnemum í tónlistardeild  Listaháskóla Íslands og ætla þau að dvelja á Ísafirði í nokkra daga við nám og leik.  Hér sækja þau námskeið í „Skapandi tónlistarmiðlun“ en hluti af námskeiðinu felst í að vinna með börnum og unglingum og verða nemendur  úr Tónlistarskóla Ísafjarðar virkir þátttakendur í þeim hluta námskeiðsins.

„Skapandi tónlistarmiðlun“ er námsgrein sem mjög hefur rutt sér til rúms á síðustu árum og á að veita innsýn í heim tónspuna  og óhefðbundinnar tónistarmiðlunar  til  að virkja og vekja sköpunarhæfileika nemenda.  

Kennarar á námskeiðinu eru Sigurður Halldórsson og Jón Gunnar Biering Margeirsson og einnig koma við sögu fimm meistaranemar Listaháskólans.

Komin er föst hefð fyrir því að nýnemar í tónlistardeild LHÍ heimsæki Ísafjörð á haustdögum og er tilgangur dvalarinnar tvíþættur. Annars vegar að hrista hópinn saman  og  hins vegar að nemarnir kynnist menningu og mannlífi utan borgarmarka Reykjavíkur. Aðstaða fyrir nemana í Tónlistarskóla Ísafjarðar er afar góð og hefur hópurinn jafnan notið fyrirgreiðslu og velvildar ýmissa aðila í bænum. Þannig eiga margir af fremstu ungu tónlistarmönnum í dag frábærar og ógleymanlegar minningar héðan frá Ísafirði.