Listaháskólanemar í heimsókn

1. október 2013 | Fréttir

Nú eru 1. árs tónlistarnemar Listaháskóla Íslands komnir í sína árlegu haustheimsókn til Ísafjarðar. Þau eru hér á 5 daga námskeiði í skapandi tónlistarmiðlun undir handleiðslu Sigurðar Halldórssonar og Jóns Gunnars Biering Margeirssonar.   Þau bjóða nú sem fyrr nemendum  Tónlistarskóla Ísafjarðar og Menntaskólans að taka þátt í námskeiðinu kl. 15.00 þriðjudaginn  1.okt. og miðvikudaginn 2. Okt. Það er alltaf gaman að taka á móti  þessum frjóa og skemmtilega hópi og gott fyrir nemendur okkar að taka þátt og kynnast ungu fólki sem hefur ákveðið að feta tónlistarbrautina.   Þau bjóða öllum á tónleika í Hömrum miðvikudagskvöldið 2. Október kl. 20.00. Þau munu líka setja lit sinn á bæinn og verða með kvöldvökur á Húsinu þriðjudags og miðvikudagskvöld  með tónlistaruppákomur. Við hér í Tónlistarskólanum bjóðum þau hjartanlega velkomin.
 

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is