Listaháskólafólk í heimsókn á Ísafirði

24. september 2012 | Fréttir

 Það er mikið fjör í Tónlistarskóla Ísafjarðar þessa dagana, skólastarfið er komið á fullt og margt skemmtilegt framundan.

Í dag mánudaginn 24..september, er von á 22 nýnemum í tónlistardeild  Listaháskóla Íslands og ætla þau að dvelja á Ísafirði í nokkra daga við nám og leik. Hér sækja þau námskeið í „Skapandi tónlistarmiðlun“ . „Skapandi tónlistarmiðlun“ er námsgrein sem mjög hefur rutt sér til rúms á síðustu árum og á að veita innsýn í heim tónspuna  og óhefðbundinnar tónistarmiðlunar  til  að virkja og vekja sköpunarhæfileika nemenda. 

Kennarar á námskeiðinu eru Sigurður Halldórsson og Jón Gunnar Biering Margeirsson og einnig koma við sögu nokkrir meistaranemar Listaháskólans en þeir koma víðs vegar að.

Komin er föst hefð fyrir því að nýnemar í tónlistardeild LHÍ heimsæki Ísafjörð á haustdögum og er tilgangur dvalarinnar tvíþættur. Annars vegar að hrista hópinn saman  og  hins vegar að nemarnir kynnist menningu og mannlífi utan borgarmarka reykjavíkur. Aðstaða fyrir nemana í Tónlistarskóla Ísafjarðar er afar góð og hefur hópurinn jafnan notið fyrirgreiðslu og velvildar ýmissa aðila í bænum. Þannig eiga margir af fremstu ungu tónlistarmönnum landsins í dag frábærar og ógleymanlegar minningar héðan frá Ísafirði.

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is