Leðurblakan leggur í langferð

18. apríl 2018 | Fréttir

Nemendaópera Söngskólans í Reykjavík kemur til Ísafjarðar í næstu viku með stórskemmtilega uppsetningu á óperettunni Leðurblökunni eftir Johann Strauss II. Leðurblakan verður sýnd í samvinnu við Tónlistarskóla Ísafjarðar í Edinborgarhúsinu mánudagskvöldið 23. apríl kl. 19:30.  Heimamenn taka þátt í sýningunni, þar á meðal félagar úr Sunnukórnum, félagar úr Leikfélagi MÍ, nemendur úr Tónlistarskóla Bolungarvíkur og nemendur söngdeildar Tónlistarskóla Ísafjarðar. Hér gefst kærkomið tækifæri til að sjá óperettu í heimabyggð en hægt er að panta miða á midi.is eða kaupa miða við innganginn. Miðaverð er  kr.3500, börn 7-12 ára fá helmings afslátt, skólafólk kr. 2500 og börn undir 7 ára fá frítt.

Óperettan er hnyttin og lífleg. Persónusköpunin er sterk og tónlistin er yfirfull af fallegum melódíum.

Sögusvið óperettunnar er Vínarborg um áramótin 1874-1875. Það er á allra vörum og í öllum blöðum að Eisenstein sé á leiðinni í fangelsi. Fyrsti þátturinn gerist heima hjá þeim hjónum Eisenstein og Rosalinde. Annar þátturinn er veisla heima hjá rússneskum prinsi, þar sem Eisenstein fellur fyrir Adele. Þriðji og síðasti þátturinn gerist í fangelsinu, þar sem framhjáhaldið kemur í ljós.

Nemendaópera Söngskólans setur árlega upp sýningar og hefur undanfarið ferðast um landið með nokkrar þeirra. Í fyrra heimsóttu þau Tónlistarskóla Ísafjarðar í fyrsta skipti og sýndu Töfraflautuna í Edinborgarhúsinu. Þar tóku nemendur Tónlistarskóla Ísafjarðar og kórafólk af svæðinu þátt og var samstarfið ákaflega vel heppnað. Það er lærdómsríkt og hvetjandi fyrir söngfólk og nemendur að fá tækifæri til þess að kynnast því sem fylgir því að setja upp sýningar af þessu tagi og vonir eru bundnar við að samstarf skólanna styrkist áfram og verði farsælt á komandi árum.

Stjórnandi er Garðar Cortes, skólastjóri Söngskólans í Reykjavík en leikstjórn er í höndum Sibylle Köll. Tónlistarstjóri sýningarinnar er Hrönn Þráinsdóttir.

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is