Krista komin aftur til starfa á Þingeyri

3. janúar 2010 | Fréttir

 Eistneski tónlistarkennarinn Krista Sildoja, sem veriið hefur í námsleyfi síðustu mánuði, er nú aftur komin til Þingeyrar og byrjar að kenna á næstu dögum. Innritun í tónlistarkennsluna fer fram í húsnæði  Tónlistarskólans í Félagsheimilinu á Þingeyri þriðjudaginn 5.janúar kl. 15-18.

Nemendur sem voru á haustönn þurfa að endurnýja skólavist sína, nemendur frá í fyrra þurfa einnig að endurnýja sínar umsóknir og svo verður pláss fyrir einhverja nýja nemendur, sem vilja hefja nám. Allir nemendur þurfa að koma með stundatöflur sínar úr öðrum skólum eða upplýsingar um hvenær þeir eru lausir, s.s. vegna íþrótta.

Krista er einstaklega fjölhæfur tónlistarmaður og getur kennt á mörg hljóðfæri, s.s. píanó, harmóníku, gítar, fiðlu og blokkflautu. Hún er einnig sérfræðingur á sviði þjóðlagatónlistar og hefur hlotið ýmsar viðurkenningar á því sviði.