Jólatorgsalan á laugardaginn!

30. nóvember 2009 | Fréttir

Jólatorgsala Styrktarsjóðs Tónlistarskóla Ísafjarðar verður haldin á Silfurtorgi laugardaginn 5.desember og hefst kl. 15:00. Torgsalan er löngu orðin ómissandi þáttur í bæjarlífinu  á aðventunni og einn stærsti liðurinn í fjáröflun Styrktarsjóðsins.  Að venju voru  steiktar mörg hundruð laufabrauðskökur, sem seldar verða á torginu ásamt  alls konar varningi sem velunnarar skólans gefa honum af miklu örlæti og eiga þeir innilegar þakkir skilið.    

Enn á ný er leitað til foreldra nemenda skólans og forráðamanna,  um að gefa varning á torgsöluna, tertur, smákökur, jólasælgæti, jólasíld, föndur eða annað sem fóli kann að detta í hug.
 
Tekið verður á móti framlögum í anddyri  nýja Grunnskólans laugard. 5. des. kl. 12:00 – 13:00

 

Heitt kakó, lummur og fjölbreyttur markaðsvarningur á Silfurtorgi kl. 15.00 á laugardaginn 5.des. Kveikt verður á jólatrénu, lúðraþytur, kórsöngur, jólasveinar! Sannkölluð aðventustemming!

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is