Innritun nýnema hafin

21. ágúst 2012 | Fréttir

Innritun nýrra nemenda hefst í Tónlistarskóla Ísafjarðar þriðjudaginn 21.ágúst og stendur fram til mánudagsins 27.ágúst.

Námsframboðið í skólanum er afar fjölbreytt: forskóli, píanó, harmóníka, gítar, bassi, blokkflauta, þverflauta, klarinett, saxófónn, kornett, trompet, básúna, horn slagverk, fiðla og selló,

söngur auk bóklegra greina. Kórstarf, lúðrasveitir, strengjasveitir er einnig öflugt við skólann. Skólinn leigir út ýmis hljóðfæri gegn vægu gjaldi, ókeypis fyrsta námsárið.

Nemendur í 1.-7. bekk geta fengið að sækja hluta tónlistarnámsins í „veltitöflum“ á skólatíma, sem hentar sérstaklega þeim sem búa ekki á Eyrinni. Nemendur í 8.-10.bekk grunnskólans fá námið metið sem val og einnig menntaskólanemar.

Innritun fer fram á skrifstofu skólans að Austurvegi 11,  kl. 10-16 næstu daga. Þaðr eru veittar nánari upplýsingar um námsframboð og skólagjöld, einnig í síma 456 3925 og á heimasíðunni www.tonis.is. Í skólanum verða einnig til sýnis hljóðfæri af ólíkum toga fyrir þá  nemendur sem ekki eru búnir að ákveða hvað þá langar mest að læra á.

Nemendur frá í fyrra voru flestir búnir að ganga frá sínum umsóknum sl.vor en þurfa að ganga frá greiðslusamningum v.skólagjalda og skila inn stundatöflum úr öðrum skólum.