Innritun í tónlistarnám á Þingeyri

13. september 2016 | Fréttir

Innritun útibús Tónlistarskóla Ísafjarðar á Þingeyri verður miðvikudaginn 14. september kl. 16:00-18:00 í húsnæði tónlistarkólans í Félagsheimili Þingeyrar.
Boðið verður upp á kennslu á gítar, rafgítar, píanó og hljómborð, blokkflautu, rafbassa, trommur og trompet. Jón Gunnar Biering verður deildarstjóri og aðalkennari útibús Tónlistarskóla Ísafjarðar á Þingeyri í vetur, en hann er reynslumikill tónlistarmaður og kennari sem sinnt hefur kennslu víða á höfuðborgarsvæðinu m.a. við Listaskóla Mosfellsbæjar og Listaháskóla Íslands.

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is