Foreldraviðtöl

16. mars 2011 | Fréttir

Í þessari viku eru foreldrar boðaðir til viðtals við kennara barna sinna, enda er skólaárið nú langt á veg komið og einungis um 7-8 kennsluvikur eftir fram að vortónleikum um miðjan maí. 

Viðtölin fara fram í spilatíma barnanna þessa sömu daga. Nemendurnir fá umsagnir og rætt verður um námsframvinduna og hvað sé framundan.
Aldrei verður lögð nógsamlega mikil áhersla á mikilvægi  þess, að foreldrar fylgist vel með náminu og sýni áhuga og stuðning. Það skiptir hreinlega sköpum í námsframvindunni,  framförum nemandans og viðhorfi hans til námsins.
Foreldrar eru vissulega alltaf velkomnir til okkar í skólann, en við viljum eindregið hvetja foreldra til að mæta vel í þá tíma, sem sérstaklega eru til þess ætlaðir.

hafið samband við kennarann ef þið getið ekki komið á þeim tíma sem ykkur er úthlutaður til viðtals.