Fengu viðurkenningu fyrir tónlistar/tungumálaverkefni

31. janúar 2012 | Fréttir

 

Nemendum í 10. bekk í Grunnskólans á Ísafirði var á dögunum afhent viðurkenning fyrir að hafa hafnað í 3. – 4. sæti í svokölluðu Brúarverkefni í dönsku. Um er að ræða samskiptaverkefni íslenskra grunnskólanemenda sem leggja stund á dönsku, sænsku og norsku og samlanda þeirra er sækja íslenskukennslu á Norðurlöndunum. Markmiðið var að stuðla að notkun norrænna tungumála og samvinnu nemenda á Íslandi, í Danmörku, Noregi og Svíþjóð í gegnum skapandi viðfangsefni á neti. 



Grunnskólinn á Ísafirði hlaut viðurkenningu fyrir myndbandið Tónlistin okkar. Í myndbandinu kynntu krakkarnir tónlist sem eitt aðaláhugamál þeirra og spiluðu
á píanó og fiðlu. Þátttakendur voru þau Haraldur Jóhann Hannesson, Kristín Harpa Jónsdóttir, Maksymilian Haraldur Frach, Sara Björgvinsdóttir og Sigríður Salvarsdóttir, undir leiðsögn dönskukennaranna sinna, þeirra Ölmu Frímannsdóttur, Guðríðar Sigurðardóttur og Kristínar Ólafsdóttur 

Myndbandið má skoða á slóðinni http://www.youtube.com/watch?v=Fn6uc88rnwo