Eistneskt þjóðlagakvöld

2. febrúar 2011 | Fréttir

Í kvöld miðvikudagskvöldið 2. febrúar  kl. 20:00 verða tónleikar í Hömrum sem bera yfirskriftina  „Eistneskt þjóðlagakvöld með myndaívafi”
Á tónleikunum spila og syngja Leanne Barbo,  Laura Barbo og Marju Varblane sem eru þessa dagana á kynnisferð um Ísland, en með þeim leika vinir þeirra, tónlistarhjónin Krista og Raivo Sildoja, sem búsett eru á Þingeyri. Leikið verður á ýmis þjóðarhljóðfæri Eistlendinga s.s. kannel, hiiu kannel. Torupill (sekkjapípa), parmupill (gyðingaharpa) og fiðlu. Þá verður myndum frá Eistlandi varpað á tjald. Tónleikarnir eru um klukkustund að lengd og aðgangseyririnn ( kr. 1.000 og kr 500 fyrir skólabörn) rennur í ferðasjóð tónlistarkvennanna.
 

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is