DAGUR TÓNLISTARSKÓLANNA UM HELGINA

21. febrúar 2012 | Fréttir

Í lok febrúar ár hvert er Dagur tónlistarskólanna haldinn hátíðlegur um allt land til að vekja athygli almennings og fjölmiðla á því mikla og metnaðarfulla starfi sem fram fer í tónlistarskólum.

 
Tónlistarskóli Ísafjarðar blæs nú til tvennra tónleika af þessu tilefni:
 
Fyrri tónleikarnir verða í Hömrum kl.19:30 fimmtudaginn 23.febrúar, 
aðalæfing kl. 15.30 sama dag – í Hömrum.
Þar koma fram um 80 nemendur á ýmis hljóðfæri. Á dagskránni kennir margra ólíkra grasa, dúettar, tríó, samsöngur, gítarsveitir, nokkrir nemendahópar leika átthent á tvö píanó, forskólabörnin syngja og svo mætti áfram telja.
 
Síðari tónleikarnir verða í Ísafjarðarkirkju kl.14:00 laugardaginn 25.febrúar, 
aðalæfing föstudaginn 24.febrúar kl.17:00 – einnig í kirkjunni.
Þeir tónleikar verða einkum á léttu nótunum og þar koma fram stærri hópar, m.a. barnakór, skólakór, þrjár lúðrasveitir, gítarsveit og fleira.  Loks kemur Stórhljómsveitin „Ísófónía“  fram á tónleikunum, en hún var eins og í fyrravetur sett saman sérstaklega af þessu tilefni eins og í fyrra. Sveitin er skipuð fjölda ungra hljóðfæraleikara á öll möguleg hljóðfæri og stjórnandi er Madis Mäekalle, en hann nýtur aðstoðar annarra kennara skólans. Kórar skólans syngja með sveitinni sem flytur vinsæl lög s.s. Þakklæti og Conquest of Paradise.
 
Stundatöflur nemenda kunna að færast dálítið til í vikunni vegna tónleika og æfinga. Foreldrar eru beðnir að fylgjast með því að börnin undirbúi sig af kostgæfni og samviskusemi, mæti stundvíslega á æfingart og tónleika og hafi samband við kennarann ef eitthvað kemur upp á. 
 
Þátttakendur í báðum tónleikunum eru hátt á annað hundrað og markmiðið er að kynna hið viðamikla starf sem fram fer í Tónlistarskóla Ísafjarðar en um leið að kennarar og nemendur skemmti sér og öðrum með fjölbreyttum tónlistarflutningi.  Áhersla er lögð á að sem flestir nemendur komi fram, en vonandi mæta líka þeir nemendur sem ekki spila núna á tónleikana og njóta þeirra með fjölskyldum sínum.