Dagur Tónlistarskólanna 15. febrúar

10. febrúar 2014 | Fréttir

Dagur Tónlistarskólanna verður haldinn hátíðlegur víða um land laugardaginn 15. febrúar n.k. Tónlistarskóli Ísafjarðar heldur þrenna tónleika að því tilefni.

Laugardaginn 15. febrúar verða tónleikar í Ísafjarðarkirkju kl. 16:00  Að þessu sinni verður sérstök áhersla lögð á yngstu nemendurna, en þau munu syngja ásamt hljómsveit, Þúsaldarljóð Sveinbjörns I. Baldvinssonar og Tryggva M. Baldvinssonar.  Verkið var samvinnuverkefni Reykjavíkurborgar og Kramhússins og var frumflutt á Menningarnótt árið 2000.  Auk þess verða lúðrasveitir, gítarsveit og aðrir samspilshópar á dagskránni.  

Miðvikudaginn 19. febrúar verða tvennir tónleikar í Hömrum með blönduðu efni annars vegar kl. 18:00 og hins vegar kl. 19:30.

Allir eru hjartanlega velkomnir á tónleikana.

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is