Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir, harmóníkuleikari

3. mars 2015 | Tónlistarfólk á eða frá Ísafirði og nágrenni

Helga Kristbjörg er fædd á Ísafirði 1987 og ólst þar upp. Hún stundaði nám við Tónlistarskóla Ísafjarðar nær óslitið frá 1995-2007 þar sem aðalnámsgrein hennar var harmonikuleikur. Fyrstu árin naut hún leiðsagnar Messíönu Marsellíusdóttur en árið 1999 tók Vadim Fjodorov við harmonikukennslunni þar til 2006 þegar Hrólfur Vagnsson var kennari  hennar í einn vetur. Hún stundaði einnig píanónám um nokkurra ára skeið. Helga hlaut ýmsar viðurkenningar fyrir góðan námsárangur í skólanum, m.a. verðlaun Ísfirðingafélagsins í Reykjavík vorið 2000 og aðalverðlaun skólans vorið 2004. Haustið 2004 stundaði Helga tónlistarnám í Frakklandi við tónlistarskólann Centre National & International de Musique & d'Accordéon (la CNIMA) þar sem aðalkennarar hennar voru J. Mornet, Roman Jbanov og Domi Emorine.
Helga Kristbjörg hefur komið fram sem einleikari á fjölda tónleika og við ótal önnur tækifæri, m.a. á landsmótum Sambands íslenskra Harmonikuunnenda en hún var valin harmonikumeistari S.Í.H.U. 2010. Hún hefur leikið með ýmsum samleikshópum og hljómsveitum, m.a. Sinfóníuhljómsveit Íslands. Helga hefur einnig starfað sem harmonikukennari við Tónlistarskóla Ísafjarðar og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Helga starfaði nokkur sumur við að kynna og leika íslenska tónlist fyrir farþega skemmtiferðaskipa sem heimsækja Ísafjörð.

Vorið 2010 lauk hún B.Mus. prófi frá Listaháskóla Íslands þar sem hún nam undir handleiðslu Tatu Kantomaa og síðar Vadim Fjodorov. Einnig stundaði hún nám á píanó sem aukahljóðfæri um tveggja ára skeið hjá Peter Maté. Helga er fyrsti harmonikunemandinn sem útskrifast frá Listaháskóla Íslands og ein af örfáum hér á landi sem stundað hafa háskólanám í harmonikuleik. Eftir útskrift hlaut Helga styrk úr Styrktarsjóði Halldórs Hansen. 

Að loknu námi við Listaháskólann stundaði Helga kennslu í harmóníkuleik við nokkra tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu við góðan orðstír. haustið 2013 fluttist hún til Kaupmannahafnar þar sem sótti einkatíma í harmóníkuleik en frá sl hausti er hún í meistaranámi við Tónlistarakademíuna þar.

Tónlistarskóli Ísafjarðar er afar stoltur af þessum nemanda sínum og sendir henni og fjölskyldunni bestu 

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is