Þverflauta er blásturshljoðfæri sem haldið er út til hægri frá munni flautuleikarans. Á henni eru 16 göt sem ráða tónunum. Algengustu tegundir eru c-flauta, alt-flauta í g, bassaflauta í c og piccoloflauta. Elstu heimildir um þverflautur eru frá 10. öld, oftast smíðaðar úr tré. Síðan voru gerðar ýmsar breytingar á flautunni. Á fyrri hluta 19. aldar tekur flautan á sig þá mynd sem við þekkjum í dag, oftast smíðuð úr málmi, stundum silfri eða gulli.