Saxófónn

10. júní 2009 | Hljóðfærin

Belginn Adolphe Sax (1814) fann upp saxófóninn og var það kynnt í París 1842.  Hljóðfærið hefur fagnað vaxandi vinsældum æ síðan.  Saxófónninn breikkar alla leið frá munnstykki út að bjöllu, er keilulaga.  Tónarnir ráðast af opnum eða lokuðum götum á búk hljóðfærisins.  Götin lokast með því að ýta á takka, þá leggst platti yfir gatið og varnar lofti útgöngu.  Saxófónninn er einblöðungur með munnstykki.    Margar tegundir eru til af saxófóni sem ákvarða tónsvið hans.

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is