Klarinett er tréblásturshljóðfæri með sívalningslaga hljóðpípu og einfalt blað í munnstykkinu til að framkalla tóninn. Líkt og með önnur tréblásturhljóðfæri er tónhæð stjórnað með því að opna eða loka fyrir göt á búk hljóðfærisins. Til eru nokkrar tegundir klarinetta en algengast er sópranklarinett í B.