![Hleð viðburði](https://tonis.is/wp-content/plugins/the-events-calendar/src/resources/images/tribe-loading.gif)
- This viðburður has passed.
Leðurblakan
23.04.2018 @ 19:30 - 21:30
![](https://tonis.is/wp-content/uploads/2018/04/leðurblakan-mynd.jpeg)
Nemendaópera Söngskólans í Reykjavík kemur til Ísafjarðar í næstu viku með stórskemmtilega uppsetningu á óperettunni Leðurblökunni eftir Johann Strauss II. Leðurblakan verður sýnd í samvinnu við Tónlistarskóla Ísafjarðar í Edinborgarhúsinu mánudagskvöldið 23. apríl kl. 19:30. Heimamenn taka þátt í sýningunni, þar á meðal félagar úr Sunnukórnum, félagar úr Leikfélagi MÍ, nemendur úr Tónlistarskóla Bolungarvíkur og nemendur söngdeildar Tónlistarskóla Ísafjarðar.