• 2. áskriftartónleikar – Tónlistarfélags Ísafjarðar

    Tónlistarskólinn Hamrar

    Heimstenór og tónlistarsení Sveinn Dúa Hjörleifsson og Bjarni Frímann Bjarnason flytja á þessum tónleikum stórvirki íslenskra sönglaga í bland við ástúðlegar þýskar tónbókmenntir. Miðaverð er 3000 kr., en 2000 kr. fyrir eldri borgara og öryrkja. Aðgangur ókeypis er fyrir skólafólk 20 ára og yngra. Miðar á tónleikana verða seldir við inngang.

    ISK2000 – ISK3000
  • Andrés Þór Paradox kvartett

    Tónlistarskólinn Hamrar

    Kvartett gítarleikarans Andrésar Þórs leikur lög af glænýjum diski hans, Paradox sem var hljóðritaður á síðasta ári í Brooklyn í New York. Á disknum, sem er sá sjötti í röðinni er að finna níu frumsamda jazzópusa sem sækja áhrif sín úr ýmsum áttum, allt frá þjóðlagatónlist til skammtafræði.  Ásamt Andrési skipa kvartettinn píanóleikarinn Agnar Már Magnússon, kontrabassaleikarinn […]

    Frítt
  • Vetrarfrí

    Tónlistarskólinn Austurvegur 11, Ísafjörður, Iceland

    Vetrarfrí er daganna 14. og 17. febrúar

  • 3. áskriftartónleikar – Tónlistarfélags Ísafjarðar

    Tónlistarskólinn Hamrar

      Tríótónar úr austri og vestri Fimmtudagurinn 20. febrúar 2020    20:00 í Hömrum   Tríó Sírajón var stofnað á vordögum árið 2010 og hefur haldið fjölmarga tónleika víðsvegar um landið sem og erlendis. Tríóið efnir gjarnan til samstarfs með öðru tónlistarfólki og hefur pantað verk frá íslenskum tónskáldum og frumflutt. Nafn tríósins vekur jafnan forvitni en […]

    ISK 2000 – ISK 3000
  • 4. áskriftartónleikar – Tónlistarfélags Ísafjarðar

    Tónlistarskólinn Hamrar

    Tónlistarfélag Ísafjarðar – 4. áskriftartónleikar Söngkonur snúa heim þann 21. mars 2020 í Hömrum     kl. 17:00                     Söngkonurnar Salóme Katrín Magnúsdóttir og Sigríður Salvarsdóttir voru báðar nemendur í Tónlistarskólanum á Ísafirði fyrir ekki svo löngu. Þær héldu svo í sitthvora áttina. Sigríður fór í klassískan söng í Listaháskóla Íslands og kláraði þar vorið 2019 og Salóme fór í […]

    ISK 2000 – ISK 3000
  • Nótan 2020

    Harpan- Reykjavík

    NÓTAN - uppskeruhátíð tónlistarskóla fagnar 10 ára afmæli sínu í ár en Nótan var fyrst haldin árið 2010 og hefur verið árlegur viðburður síðan. Haldið verður upp á afmælið með pomp og pragt í Hörpu sunnudaginn 29. mars 2020. Tónleikaröð – Eldborg Í Eldborg verður boðið upp á röð tónleika frá kl. 11:00 til 15:00 […]

  • Skólaslit

    Ísafjarðarkirkja

    Skólaslit í Ísafjarðarkirkju, fimmtudaginn 28. maí 2020

  • Foreldraviðtöl

    Fyrirhuguð foreldraviðtöl með breyttu sniði vegna COVID -

  • Starfsdagur

    Starfsdagur samkvæmt skóladagatali 2020-2021